CORTEN
Verð kr.
TRACE VITRO flísarnar frá CÆSAR eru úr gegnheilli steinefnablöndu úr kvartzi, feldspati. leir o.fl. Blandan er pressuð við 450 kg/cm2 þrýsting og sindruð við 1250 °C hita. Aðferðin tryggir gríðarlegt slitþol og afar lága vatnsídrægni. Tölugildi þessara eiginleika eru mun betri en þau sem gildandi staðlar (ISO 10545-3 og 10545-6) krefjast. Innbyrðis litadreifing er V3 og hálkustuðull R9 A (mött og slétt áferð). TRACE VITRO flísarnar eru kantfræstar og brúnir míkrófasaðar. Nákvæmni framleiðslunnar er slík að fúgubreidd getur verið 1 mm.
TRACE VITRO flísarnar má leggja innan- og utandyra. Þær henta sérstaklega vel í klæðningar, á baðherbergi, en einnig á anddyri og aðrar móttökur, bílskúra, forstofur, sólstofur, veitingastaði og opinbera staði.