Vörulýsing
MARVEL TERRAZZO BLACK flísarnar frá ATLAS CONCORDE eru úr steinefnablöndu úr kvartzi, feldspati, leir o.fl. Blandan er pressuð við ca. 450 kg/cm2 þrýsting og sindruð við 1250°C hita. Aðferðin tryggir gríðarlegt slitþol og afar lága vatnsídrægni. Tölugildi þessara þýðingarmiklu eiginleika eru mun betri en gildandi staðlar (ISO 10545-3 og 10545-6) kveða á um. Litun samkvæmt “Coloured-in-body-porcelain” tækni. Innbyggð litdreifing er V2 og hálkustuðlar R9 A (mött áferð) og R8 (lakkáferð). MARVEL TERRAZZO BLACK flísarnar eru kantfræstar og brúnir míkrófasaðar. Nákvæmni framleiðslunnar er slík að fúgubreidd getur verið 1 mm.
MARVEL TERRAZZO BLACK flísarnar má leggja innan- og utandyra. Þær henta sérstaklega vel á baðherbergi, eldhús og önnur rými innandyra. Einnig á hótel, heilsulindir, sólstofur, móttökur, veitingastað og aðra opinbera staði. Fyrirmyndin að útliti flísanna er af flotuðum gólfum.
Stærðir
Marvel Terrazzo Black 60×60 Lappato 60×60 cm